Íslandsmótið í borðtennis fór fram helgina 5.-6. mars í TBR húsinu. 100 keppendur tóku þátt frá Víkingi, HK, KR, Fjölni, Erninum, Dímon, ÍFR, KV og Akri.
Látum myndirnar tala sínu máli..
Guðmundur Eggert Stephensen varð Íslandsmeistari í Meistaraflokki karla 18.árið í röð. Hann sigraði Kára Mímis í úrslitaleik örugglega 4-0 (11-4, 11-5, 11-5, 11-6).
Meistaraflokkur karla
1. Guðmundur Stephensen, Víkingi
2. Kári Mímisson, KR
3.-4. Davíð Jónsson, KR
3.-4. Kjartan Briem, KR
Halldóra Ólafs varð Íslandsmeistari í Meistaraflokki kvenna. Þetta er annað skiptið sem Halldóra hampar titlinum en seinast sigraði hún hann árið 2003. Hún mætti systur sinni Magneu Ólafs í úrslitaleik og sigraði 4-1 (9-11, 13-11, 11-5, 11-5, 11-6)
Meistaraflokkur kvenna
1. Halldóra Ólafs, Víkingi
2. Magnea Ólafs, Víkingi
3. Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon
Gamli jálkurinn Óli Páll Geirsson varð Íslandsmeistari í 1.flokki karla en hann lagði Ársæl Aðalsteinsson félaga sinn úr B-liðinu 3-2 (11-9, 12-10, 10-12, 3-11, 11-5) í æsispennandi leik.
1. flokkur karla
1. Óli Páll Geirsson, Víkingi
2. Ársæll Aðalsteinsson, Víkingi
3.-4. Hlöðver Steini Hlöðversson, KR
3.-4. Stefán Birkisson, Víkingi
Magnea Ólafs varð Íslandsmeistari í 1.flokk kvenna en hún náði fram hefndum gegn Bergrúnu Lindu Björgvinsdóttur og sigraði í æsispennandi leik 3-2 (11-7, 12-14, 5-11, 11-9, 11-8 ). Magnea endurheimti titilinn sem hún vann árin 2003-2006.
1. flokkur kvenna
1. Magnea J. Ólafs, Víkingi
2. Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Dímon
3.-4. Eva Morgan Maurin, KR
3.-4. Sigrún Ebba Tómasdóttir, KR
Eyrún Elíasdóttir varð Íslandsmeistari í 2.flokki kvenna en hún sigraði Hólmfríði Snorradóttur í úrslitum 3-0 (11-8, 11-8, 11-3).
2. flokkur kvenna
1. Eyrún Elíasdóttir, Víkingi
2. Hólmfríður Snorradóttir, HK
3.-4. Hrefna Namfa Finnsdóttir, HK
3.-4. Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir, HK
Guðmundur Stephensen og Magnús Kristinn Magnússon urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik karla 4.árið í röð. Þeir mættu Davíð Jónssyni og Kára Mímis í úrslitaleik sem þeir sigruðu örugglega 4-0 (11-7, 11-7, 11-5)
Tvíliðaleikur karla
1. Guðmundur Stephensen/Magnús K. Magnússon, Víkingi
2. Davíð Jónsson/Kári Mímisson, KR
3.-4. Daði Freyr Guðmundsson/Magnús Finnur Magnússon, Víkingi
3.-4. Bjarni Þ. Bjarnason/Kristján Jónasson HK/Víkingi
Víkingssysturnar Halldóra Ólafs og Magnea Ólafs urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik kvenna og er þetta þeirra fyrsti titill saman. Þær sigruðu mæðgurnar Ástu Urbancic og Sigrúnu Ebbu Tómasdóttur úr KR 3-2 (7-11, 12-10, 11-13, 11-8, 11-8 ) í hörkuspennandi úrslitaleik.
Tvíliðaleikur kvenna
1. Halldóra Ólafs/Magnea Ólafs, Víkingi
2. Ásta Urbancic/Sigrún Ebba Tómasdóttir, KR
3.-4. Bergrún Linda Björgvinsdóttir/Eyrún Elíasdóttir, Dímon/Víkingi
3.-4. Hólmfríður Snorradóttir/Hrefna Namfa Finnsdóttir, HK
Önnur úrslit:
Tvenndarkeppni
1. Einar Geirsson/Ásta Urbancic, KR
2. Davíð Jónsson/Sigrún Ebba Tómasdóttir, KR
3.-4. Magnús Finnur Magnússon/Eyrún Elíasdóttir, Víkingi
3.-4. Magnús K. Magnússon/Magnea Ólafs, Víkingi
2. flokkur karla
1. Markús Brekke Þorfinnsson, HK
2. Skúli Gunnarsson, KR
3.-4. Daníel Harðarson, KR
3.-4. Guðmundur Örn Halldórsson, Fjölni